Til baka

Grímsey

Grímsey er græn, grösug og einstaklega gjöful eyja. Útvörðurinn í norðri með auðug fiskimið og litríkt fuglalíf.

Frægust er Grímsey trúlega í hugum ferðamanna fyrir heimskautsbauginn og kemur fólk gjarnan langa leið til þess eins að stíga norður fyrir baug. Heimskautsbaugurinn er alltaf á örlítilli hreyfingu og segir sagan að eitt sinn hafi hann legið um mitt hjónarúm prestsins á Básum.

Grímsey er 5,3 km² að stærð. Hæst er hún 105 metrar og er fjarlægð frá Íslandi 41 km.

Mannlífið er kröftugt og bjart. Grímseyingar eru miklir gleðimenn sem vinna og skemmta sér af alhug.

Aðalatvinnuvegurinn er fiskveiðar og fiskverkun. Einn besti íslenski saltfiskurinn er einmitt unninn þar.
Múli er myndarlegt félagsheimili og fjölnotahús. Þar er samkomusalur íbúa, bókasafn, Eyjarbókasafnið, heilsurækt og aðstað fyrir læknaheimsóknir.
Læknar á Akureyri skiptast á og koma u.þ.b. einu sinni í mánuði til að sinna heilsufari íbúa. 

Miðgarðakirkja var reist úr rekavið árið 1867, hún brann haustið 2021 og sendur til að endurbyggja nýja kirkju á sama stað árið 2022.
Dalvíkurpresturinn þjónar söfnuðinum í Grímsey

Góð sundlaug var vígð árið 1989, hún er innanhús og þar má líka finna heitan pott.  Við sundlaugina er tjaldstæði eyjarinnar og þar má einnig finna grillhús, bekki og vaska.

Grímsey tilheyrir sveitarfélaginu Akureyrarbæ.

Sjá nánari upplýsingar um afþreyingu, ferðaþjónustu, samgöngur og áhugaverða staði á heimasíðu Grímseyjar.