Til baka

Hjörtun á Akureyri

Hjörtun í umferðaljósunum, hjartað sem sló og slær vonandi aftur von bráðar í Vaðlaheiðinni, og rauðu límhjörtun í mörgum gluggum húsanna, hafa sannarlega vakið athygli þeirra sem sækja Akureyri heim og hafa þau eignast fastan sess í hjörtum bæjarbúa.

Forsaga hjartanna nær til ársins 2008 en það sumar tók hátíðin Ein með öllu sem haldin er um verslunarmannahelgi miklum breytingum sem fjölskylduhátíð. Eitt af því sem gert var til að leggja áherslu á gildi hátíðarinnar var að setja rauð hjörtu í umferðaljósin og vöktu þau mikla lukku. Um haustið voru miklir erfiðleikar í samfélaginu sökum fjármálahruns og þótti þörf á að smita jákvæðni og bjartsýni til allra. Með það að leiðarljósi fóru Akureyrarstofa og fyrirtækið Ásprent-Stíll í samstarf um að dreifa þessum skilaboðum sem víðast og hvetja sem flesta til að leggja gjörva hönd á plóg. Átakið var kallað “Brostu með hjartanu” og er óhætt að segja að þátttakan hafi verið mikil.

Hjörtun slógu í gegn og það sama gildir um tilvitnanir og málshætti sem hvöttu til bjartsýni og jákvæðni en fjöldi fyrirtækja og stofnanna skreyta veggi sína með slíkum hvatningum. Í lok nóvember sama ár birtist svo rautt risastórt sláandi hjarta í Vaðlaheiði. Hjartað var á stærð við fótboltavöll og áttu starfsmenn fyrirtækisins Rafeyrar heiðurinn að hugmyndinni og framkvæmd hennar en fyrirtækið fékk aðstoð frá m.a.  Bechromal og RARIK og Norðurorku.  Hjartað sló árlega frá lok nóvembermánaðar, þegar Aðventuævintýri hefst á Akureyri og fram í apríl. Það sló einnig á Akureyrarvöku síðustu helgina í ágúst, sem er afmæli Akureyrarbæjar.

Nú er unnið að því að gera hjartað aftur tilbúið til að slá og gera áætlanir ráð fyrir að það verði að veruleika 2020.