Til baka

Laufás

Laufás kemur við sögu skömmu eftir að Ísland byggðist og þar hefur staðið kirkja frá fyrstu kristni. Í katólskum sið var hún helguð Pétri postula. Prestssetur hefur verið í Laufási frá fyrstu kristni og er enn. Síðasti presturinn sem bjó í gamla bænum, séra Þorvaður Þormar, flutti árið 1936 í nýtt prestssetur og þar bjuggu Laufássprestar fram til ársins 2000.
Sú kirkja sem nú stendur í Laufási var byggð 1865. Meðal merkra gripa í eigu kirkjunnar er predikunarstóll sem ber ártalið 1698. Við austurgafl kirkjunnar stendur eitt elsta reynitré landsins frá 1855.

Búsetu í Laufási má rekja allt aftur til heiðni en í elsta hluta gamla bæjarins sem nú stendur er talið að séu viðir allt frá 16. og 17. öld. Bærinn var endurbyggður af mikilli reisn í tíð séra Björns Halldórssonar sem sat staðinn árin 1853-1882. Laufásbærinn er stílhreinn burstabær, dæmigerður fyrir íslenska bæjagerð þess tíma, en þó allmiklu stærri. Algengt var að tuttugu til þrjátíu manns væru til heimilis í Laufási, því margt vinnufólk þurfti til að nytja þessa gróðursælu kostajörð en henni fylgdu mikil hlunnindi.

Laufásbærinn er í dag búinn húsmunum og áhöldum líkast því sem tíðkaðist í kringum aldamótin 1900.

Í gamla prestssetrinu sem er í eigu Minjasafnsins á Akureyri hefur verið rekin Gestastofa Laufáss frá sumrinu 2014. Þar er lögð áhersla á móttöku ferðamanna og gesta, meðal annars með fræðslu um sögu staðarins, náttúruna og nánasta umhverfi. Hægt er að fá kaffi og léttar veitingar og njóta útsýnisins eða líta í bók og blöð í bókahorninu. Þá er einnig starfrækt í Gestastofunni handverks- og minjagripaverslun þar sem gefur að líta fjölbreytt vöruúrval m.a. frá athafnafólki af svæðinu.

Opið er daglega í Laufási frá 13. maí - 15. september frá 11-17.

Aðgangseyrir (2021):
kr. 1800
Fyrir eldriborgara og öryrkja kr. 900
Frítt fyrir börn 17 ára og yngri.
15% afsláttur fyrir hópa 10 eða fleiri.
Dagpassi á 5 söfn kr. 2300: Minjasafnið, Nonnahús, Leikfangahúsið, Davíðshús og Laufás.

Þjónustusími og bókanir fyrir hópa: 463 3196 eða 895 3172.
Tölvupóstur: laufas@minjasafnid.is

Gamli bærinn Laufás er á Facebook.

Gamli bærinn í Laufási er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Minjasafnið á Akureyri hefur umsjón með gamla bænum og sér um rekstur hans.

Laufáshópurinn heyrir undir Handraðann sem er félagsskapur fólks sem vinnur að því að viðhalda þekkingu á þjóðháttum landsins hvort sem er í handverki, tónlist, sagnahefð eða náttúru.

Handraðinn er á Facebook undir heitinu "Þjóðháttarfélagið Handraðinn".

Nánari upplýsingar


Leiðarlýsing:

Google maps

Staðsetning:
65.894353, -18.071477 (65° 53.661'N, 18° 4.289'W)

Vegnúmer: 1 & 83

Vegalengd frá Akureyri:
29 km