Til baka

Andrésar Andar leikarnir (apríl)

Andrésar Andar leikarnir verða haldnir 24-27. apríl 2024
Leikarnir voru fyrst haldnir 1976 og hafa verið árviss atburður síðan og notið vaxandi hylli allra sem þar hafa komið nálægt, bæði barna og fullorðinna. Þetta er fjölmennasta skíðamót landsins, hátt í 1.000 keppendur á aldrinum 4 -15 ára keppa í alpagreinum, skíðagöngu og snjóbrettum, að ógleymdri keppni í þrautabraut fyrir yngstu þátttakendurnar.

Fjölmargir skíðamenn eiga ljúfar minningar frá leikum liðinna ára og ekki er óalgengt að sjá fyrrum keppendur mæta brosandi með börnin sín á Andrésar leikana og flestir ef ekki allir okkar bestu skíðamenn byrjuðu sinn keppnisferil þar.

Skíðafélag Akureyrar stendur á bak við leikana og má finna nánari upplýsingar á heimasíðu þeirra og á Facebook síðu leikanna.

 

ANDRÉSAR ANDAR LEIKARNIR 2023 - sjá dagskrá hér