Til baka

Íslensku vetrarleikarnir (mars)

Iceland Winter Games (IWG) er vetrar- og útivistarhátíð sem haldin er á Norðurlandi í fjórða sinn árið 2019 og hefur hún fest sig í sessi, jafnt hjá bæjarbúum sem og vetraríþróttafólki og áhugamönnum um allt land. Árið 2015 sameinuðust tvær stærstu vetrarhátíðir Norðurlands, Éljagangur og IWG undir nafni og merkjum Iceland Winter Games, sem gerir IWG að stærstu vetrarhátíð landsins og er enn í mjög örum vexti.

Iceland Winter Games (IWG) er alþjóðleg vetraríþróttahátíð og var síðast haldin í Hlíðarfjalli dagana 22.-24. Mars 2019, en hefur verið aflýst vegna Covid 19 fram að þessu. Keppendur hafa komið víðsvegar að úr heiminum, meðal annars frá Kanada, Bandaríkjunum, Noregi, Ungverjalandi, Austurríki og fleiri Evrópu löndum og að sjálfsögðu Íslandi.

Aðalviðburður á leikunum árið 2019 var keppni á Snjóskautum eða Sled Dogs Snowskates og nefnist Bonefight og var það í fyrsta skipti sem keppt var í þessari íþrótt á Íslandi.

Þess má einnig geta að við Íslendingar eigum einmitt heimsmeistarann í Snowskates íþróttinni og er það Akureyringurinn Ingi Freyr Sveinbjörnsson sem byrjaði  sinn feril á skautunum hér í Hlíðarfjalli. Margir af þeim keppendum sem eru að koma á IWG vegna Sled Dogs eru gríðarlega stór nöfn í skautaheiminum og þá sérstaklega Hokkíinu en Snjóskauta íþróttin er mjög vinsæl meðal hokkíleikmanna.

Einnig var fjallahjólabrun í bröttustu brekku skíðasvæðisins, vélsleðaspyrna og snjócross á vélsleðum, íslandmeistara mót í snjóblaki sem var haldið í Hlíðarfjalli og var jafnframt í fyrsta skipti sem slíkt mót er haldið á Íslandi, Freeride skíða/bretta keppni þar sem keppt er utan troðinna skíðaleiða og var að þessu sinni haldið í Hlíðarfjalli í fyrsta skipti.

Auk allra viðburða Íslensku vetrarleikanna IWG koma allflestir ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi að IWG og bjóða upp á skipulagðar ferðir á meðan á hátíðinni stendur. Þar má finna ferðir á borð við troðaraferðir á Múlakollu á Tröllaskaga og á Kaldbak, vélsleðaferðir, þyrluskíðaferðir, norðurljósaferðir, skonnortu skíðaferðir um Eyjarfjörð með vistvænum bátum Norðursiglingar og margt fleira.   

Það er Viðburðastofa Norðurlands sem skipuleggur Íslensku vetrarleikana í samvinnu við fjölmarga aðila og styrktarfyrirtæki. Fjölmargir ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi taka þátt í viðburðinum og skipuleggja áhugaverðar ferðir tengdar vetrarútivist og upplýsingar um þær koma fram á síðu hátíðarinnar.

Dagskrá 2020

Föstudagur 20 mars: 

15:00-17:00 Snowskates kynning og kennsla í Hlíðarfjalli í boði keppenda

19:00 Ey - Lív vélsleðaspyrnan

Fer fram í Hólabraut í Hlíðarfjalli. Mæting kl 18:00

Laugardagur 21 mars:

09:00 - 16:00 Sleddog Bonefight - National league

  • 09:00 Skráning keppenda
  • 10:00 Tímatökur
  • 13:00 Bonefight
  • 14:30 Freestyle
  • 15:30 Red bull run
  • 16:00 Verðlaunaafhending

16:30 Fjallahjólamót HFA

Fer fram í Suðurgilinu í Hlíðafjalli (við hliðina á stólalyftunni)

Sunnudagur 22 mars:

Fjölskyldudagur í Kjarnaskógi

Meðal viðburða verða: 

  • Snjókarlakeppni
  • Rafmagnshjóla kynning og samhjól
  • Gönguskíða kynning og skíðaskotfimi
  • Skátarnir
  • Kakó og kósý í skóginum
  • Brauðbakstur og poppað yfir eldi
  • Hestamannafélagið
  • Snjóþrúguganga

 

ATH: Dagskrá og tímasetningar sett upp með fyrirvara um breytingar.

Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðunni www.icelandwintergames.com/

Nánari upplýsingar

 www.icelandwintergames.com/