Jólatorgið opnar formlega laugardaginn 21. nóvember kl. 16 við hátíðlega athöfn þegar tendrað verður á jólatrénu á Ráðhústorgi. Sjá dagskrána HÉR
Jólatorgið verður síðan opið allar helgar fram að jólum með eftirfarandi opnunartíma:
Laugardagur 21. nóvember - kl. 15-18
Sunnudagur 22. nóvember - kl. 14-17
Laugardagur 28. nóvember - kl. 14-18
Sunnudagur 29. nóvember - kl. 14-17
Laugardagur 5. desember - kl. 14-18
Sunnudagur 6. desember - kl. 14-17
Laugardagur 12. desember - kl. 14-18
Sunnudagur 13. desember - kl. 14-17
Laugardagur 19. desember - kl. 14-18
Sunnudagur 20. desember - kl. 14-17

Bráðlega mun birtast upplýsingar um söluaðila og skemmtidagskrána á Jólatorginu. Fyrirspurnir varðandi Jólatorgið má beina til Elísabetar Agnar Verkefnastjóra Menningarmála í gegnum netfangið elisabetogn@akureyri.is

Upplýsingar um söluhúsin:
Söluhúsin eru 190cm x 250cm að stærð. Loftljós, innstungur og rafmagnsofn ásamt sölulúgu eru í öllum húsum. Söluaðilar koma sjálfir með stóla, borð, posa, og annað slíkt. Leiguverð fyrir eitt hús er 20.000 kr. fyrir eina helgi. Hægt er að sækja um söluhús fyrir eina eða fleiri helgar, ekki fyrir
staka daga. Heimilt er að tveir söluaðilar deili húsi. Leigugjaldið miðast við húsið, óháð fjölda aðila. Innifalið í leigugjaldi er allur kostnaður við uppsetningu, rekstur húss og þrif á svæðinu. Að auki mun Akureyrarbær sjá um að laða að gesti og kynna jólatorgið á Akureyri með ýmsum hætti, til að mynda með skemmtidagskrá sem eykur aðdráttarafl Jólatorgsins.
Vakin er sérstök athygli á að söluaðilar þurfa að uppfylla þau lög og reglur sem gilda um sölu og meðhöndlun vara.


Nánari upplýsingar um Jólatorgið veitir Elísabet Ögn verkefnastjóri menningarmála hjá Akureyrarbæ í netfanginu elisabetogn@akureyri.is