Til baka

Miðaldadagar á Gásum (júlí)

Aflýst 2020 og 2021

Líf og starf fólks í Gásakaupstað miðalda er endurvakið á Miðaldadögum sem haldnir eru um miðjan júlí ár hvert. Kaupstaðurinn iðar af lífi og starfi miðaldafólks með fjölbreyttustu viðfangsefni.  Iðnaðarmenn með brennisteinshreinsun, tré- og járnsmíðar, útskurð, leirgerð og viðgerðir á nytjahlutum. Bogar og örvar eru smíðaðir. Knattleikur er iðkaður af miklu kappi. Gestir kynnast vígfimum Sturlungum og vígamönnum í för erlendra kaupmanna og er fátt eitt upptalið. 

Miðaldadagar á Gásum eru yfirleitt haldnir frá Laugardegi til sunnudags,
Hægt er að greiða með korti við inngang en inni á miðaldarmarkaðinum er eingöngu hægt að versla með reiðufé.

Gestir eru hvattir til að taka með nesti og njóta þess í skemmtilegur og fallegu umhverfi Gása.

Fróðleg 2 mínútna kynning á Gásum

Leiðarlýsing til Gása:
Gásir eru við Hörgárósa í Eyjafirði, 11 km norðan við Akureyri.
Þegar ekið er frá Akureyri til norðurs eftir þjóðvegi 1, líkt og stefnan sé tekin til Reykjavíkur, er beygt til hægri eftir 4 km, inn á veg númer 816, eftir honum er ekið u.þ.b. 6 km eða þangað ekið er inn á bílastæðið við Gása.

Hvergi á Íslandi eru varðveittar jafnmiklar mannvistarleifar frá verslunarstað frá miðöldum. Gásir voru helsti verslunarstaður á Norðurlandi á miðöldum og er staðarins víða getið í fornritum frá 13. og 14. öld.
Nánar um verslun hér.

Nýnæmið að þessu sinni er fólgið í dönskum klukkusteypi, Michael Sasserson, sem ætlar að steypa klukku úr bronsi með aðferðum miðaldamanna. Klukkan á að fara í miðaldakirkju sem verður reist á næstu árum að Gásum. Það verður líka byrjað á bátasmíðaverkefni sem er nokkuð óvanalegt. Þetta er verkefni sem er áætlað að taki 10-15 ár og felst í því að smíða bát meðan á Miðaldadögum stendur. Aðeins verða notuð miðaldaverkfæri við smíðina og verða þau flest smíðuð af eldsmiðum á Gásum. Þannig verður bara unnið í bátnum þessa þrjá-fjóra daga á ári, enda er markmiðið að sýna verklagið og verkfærin fremur en að klára bátinn.

Sjá nánar á www.gasir.is.