Til baka

Pollamót Þórs í knattspyrnu (júlí)

Pollamót Þórs og Samskipa er árlegur íþróttaviðburður sem fer fram í byrjun júlí. Mótið hefst á föstudagsmorgni og lýkur með lokahófi á laugardagskvöldinu. Á þessu móti taka þátt kempur kvenna og karla í eldri kantinum sem rifja upp gamla takta í knattspyrnu. Mótið fer fram á Íþróttasvæði þórs við Hamar.

Fjöllmenn lið karla og kvenna hafa í gegnum tíðina verið skráð til leiks á mótið. Þátttakendur á mótinu hafa verið um 600.

Pollamót Samskipa og Þórs 2024 verður haldið dagana 5.-6. júlí

Nánari upplýsingar í síma Þórs 461-2080 eða pollamot@thorsport.is.
Sjá einnig heimasíðu Þórs.