Til baka

Ævintýragarðurinn

Ævintýragarðurinn
Oddeyrargötu 17
600 Akureyri

Það er draumur hvers manns að skapa og miðla með öðrum. Með það í huga hefur Hreinn Halldórsson á síðustu árum skapað hin ýmsu verk sem staðset eru í garðinum við heimili hans.

Hann hefur fundið fyrir áhuga ferðamanna og ekki síður Íslendinga á að skoða verkin og varð það til þess að á síðasta sumri opnaði hann aðgang að garðinum fyrir almenning.

Opnunin á garðinum gekk vel og var umgengni gesta til fyrirmyndar.
Því hefur Hreinn ákveðið að endurtaka þessa opnun og verður garðurinn sem kallaður er Ævintýragarðurinn

Opið er alla daga sumarið 2023 frá klukkan 10.00-20.00
Aðgangur er ókeypis og myndatökur leyfðar


Við flest verkin en stuttur texti bæði á íslensku og ensku með nafni verksins og úr hvaða ævintýri það er tekið.

Garðurinn er einkagallerí, lifandi undir berum himni. Þar er lofthæðin endalaus og lýsingin síbreytileg. Hægt er að fullyrða að það eru ekki mörg gallerí á Íslandi þar sem búast má við rigningu eða jafnvel snjókomu og roki þegar gengið er um galleríið og verkin skoðuð. Oftast er þó glampandi sól, logn og þægilegur útihiti eins og Akureyri er þekkt fyrir!

Verkin má flest rekja til íslenskra bókmennta og ævintýra en síðustu ár hefur hugur Hreins og listsköpun snúið að sígildum ævintýrum sem eru honum minnisstæð frá bernskuárum hans.

Verkin eru heimakær og vilja ekki yfirgefa garðinn en þó hafa sum þeirra sýnt sig á á Handverkshátíðinni í Eyjafjarðarsveit og í sýningarrými Amtsbókasafnsins á Akureyri.

Í sumar hafa bæst við fimm nettar dömur í þjóðlegum fatnaði. Systurnar frá Stapa kalla þær sig, en samkvæmt upplýsingum Hreins voru þær bara þrjár en hjá honum eru þær fimm! Þær líta frekar fínt á sig og ætla að halda sig í sumar inn í gróðurhúsinu en eru þó alltaf til í að spjalla við gesti.