Til baka

Hús Hákarla-Jörundar (Hrísey)

Í þessu elsta húsi Hríseyjar er nú búið að koma upp vísi að sýningu sem tengist hákarlaveiðum við strendur Íslands fyrr á öldum. Húsið var byggt á árunum 1885-86 af Jörundi Jónssyni, eða Hákarla-Jörundi úr timbri norskra skipa er fórust við Hrísey, þann 11. september 1884. Húsið hefur verið gert upp og fært í upprunalegt útlit. Húsið er opið alla daga vikunnar frá 1. júní- 31. ágúst og utan þess tíma er hægt að hafa samband í síma 695-0077 eða senda fyrirspurn á hrisey@hrisey.net 

Sjá einnig skilti um húsið og sögu þess hér

Hús Hákarla-Jörundar (Hrísey)
Norðurvegur
Hrísey
Sími 695-0077
Netfang: hrisey@hrisey.net