Til baka

Tröll

Eru tröllin nágrannar þínir?

Samkvæmt íslenskri þjóðtrú er náttúran ekki öll þar sem hún sýnist og til eru ótal sögur af tröllum og fornynjum sem fólki stendur stuggur af. Mörg fjöll og klettahamrar í nánasta umhverfi Akureyrar geyma dularfullar tröllasögur frá liðnum öldum. Þessar risavöxnu verur bjuggu í fjöllum, hellum og klettum fjarri en oft furðu nærri mannabyggðum. Í hugum fólks voru tröllin oft hluti af landslaginu sjálfu og mörg örnefni og sérkennilegar klettamyndanir tengdust sögum af þeim. Nátttröll máttu til að mynda ekki sjá dagsins ljós því þá urðu þau að steini. Þannig skýrðu sögurnar tilurð dranga, kletta og annarra sérkennilegra náttúrumyndana. Önnur tröll voru sögð búa yfir óvenjulegum kröftum, sum hættuleg og skapvond, en önnur vitur eða hjálpsöm. Tröllkonur, sem oftast voru nefndar skessur, skipa einnig stóran sess í þjóðsögunum. Eitt þekktasta tröll íslenskra sagna er Grýla, tröllskessa sem tengist jólahaldi Íslendinga og er sögð móðir jólasveinanna þrettán.

Tröllin umhverfis Akureyri
Eyjafjörður og fjöllin í kringum Akureyri eiga sinn skerf af tröllasögum. Í sögnum og örnefnum lifa minningar um tröllskessur og dularfullar verur sem áttu að hafa byggt dali og fjallshlíðar svæðisins.

Meðal sagna úr Eyjafirði og nærliggjandi dölum eru sögurnar af Bryðju og Kvörn, tröllkonunni í Skíðadal, Geiru í Myrkárdal, tröllkonunni í Glerárdal og skessunni í Víkurskarðsmúla. Í Fnjóskadal er einnig að finna sögur af kynjaverum á borð við Blákápu, Loppu og Grákollu.

Örnefni bera líka vitni um þann sess sem tröllin eiga í staðbundinni þjóðtrú. Tröllaskagi, Tröllafjall, Tröllahyrna, Trölladalur, Tröllaspegill og Tröllaskeið vekja forvitni og gefa tilefni til að horfa á landslagið með augum þeirra sem sögðu sögurnar áður fyrr.

Lifandi menningararfur
Tröllasögur voru ekki aðeins til skemmtunar. Þær hjálpuðu fólki að skilja landslagið, útskýra örnefni og miðla þekkingu, gildum og hugmyndum milli kynslóða. Þær endurspegla einnig samband fólks við náttúruna og þá dulúð sem fylgdi lífinu í afskekktum byggðum.
En tröllin tilheyra ekki aðeins fortíðinni. Þau lifa áfram í íslenskri menningu, listum, bókmenntum og ímyndunarafli. Í kringum Akureyri er því hægt að kynnast landslagi sem geymir bæði náttúruperlur og sögur sem hafa verið sagðar mann fram af manni, frá einni kynslóð til annarrar.
Næst þegar þú horfir upp til fjallanna við Eyjafjörð er ekki úr vegi að velta fyrir sér: Hvað ef einhver þessara kletta er í raun tröll sem náði ekki að fela sig fyrir dagsljósinu?

Örnefni í Eyjafirði og nágrenni
Tröllaskagi                   Tröllafjall                    Tröllahyrna
Tröllahryggur              Tröllhylur                    Tröllhylshvammur
Tröllaskeið                   Tröllaskriður               Tröllaspegill
Trölladalur                   Tröllaskál                     Tröllhöfði
Grýlusteinn                  Skessunef                    Skessuhryggur
Skessubjarg                 Jötunheimar                Bryðjuskál

Tröllasögur úr Eyjafirði og nærliggjandi dölum
Bryðja og Kvörn
Tröllkona í Skíðadal
Geirufoss: Tröllkonan Geira í Myrkárdal
Tröllkonan í Glerárdal
Skessan í Víkurskarðsmúla
Í Fnjóskadal eru nokkrar tröllasögur, svo sem: Blákápa, Loppa, Grákolla, Tröllskessan á Bleiksmýrardal o.fl.