Til baka

Davíðshús

Bjarkarstíg 6
Sími: 462 4162
Netfang: minjasafnid@minjasafnid.is
Heimasíða: minjasafnid.is

Erfingjar Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi ánöfnuðu Akureyrarbæ bókasafni og innanstokksmunum hússins að Bjarkarstíg 6, en skáldið byggði og bjó í því húsi til dauðadags 1964. Upphaflega stóð til að koma mununum fyrir á Amtsbókasafninu, en nokkrir vinir Davíðs efndu þá til landssöfnunar og var húsið keypt og afhent bænum til umsjár. Þar var opnað safn á efri hæð hússins á afmæli skáldsins 1965, og er íbúð hans varðveitt eins og hann skildi við hana. Bókasafn hans var eitt merkasta bókasafn landsins í einkaeigu, en auk þess er þar að finna fágæt listaverk eftir vini skáldsins.

Á neðri hæð hússins er íbúð sem rithöfundar og fræðimenn geta fengið til afnota í lengri eða skemmri tíma gegn vægu gjaldi. Sjá nánar neðar á síðunni.

Safnið í Davíðshúsi er opið kl. 13-17 þriðjudaga til laugardaga á sumrin frá 1. júní til 31. ágúst - leiðsögn kl. 16.00. 

Ef óskað er eftir skoðunarferð á öðrum tímum en opnunartímum, má hringja í síma 462 4162 eða senda tölvupóst á minjasafnid@minjasafnid.is.

Upplýsingar um aðgangseyri og árskort er að finna hér.

Rithöfunda- og fræðimannaíbúð
Rithöfunda- og fræðimannaíbúð er á neðri hæð hússins. Íbúðin er ætluð rithöfundum og fræðimönnum til afnota í lengri eða skemmri tíma gegn vægu gjaldi (skv. gjaldskrá 2025)
Kr 30,000 ein vika
Kr 55.000 tvær vikur
Kr 75.000 þrjár vikur
Kr 92,000 fjórar vikur
kr. vika, 92.000 kr. mánuður, hámark einn mánuð í senn.

Í íbúðinni eru svefnherbergi, stofa, vinnuherbergi með svefnsófa, eldhús og baðherbergi. Sjónvarp, þvottavél og þurrkari eru til staðar í íbúðinni, einnig almennur húsbúnaður og lín, ásamt þráðlausri nettengingu. Símanúmer í gestaíbúð er 462 7498.

Auglýst er sérstaklega eftir umsóknum um íbúðina á haustdögum fyrir komandi ár. Aðilum er hins vegar frjálst hvenær sem er að kanna hvort íbúðin sé laus á ákveðnum tímum.

Umsóknir skulu berast til umsjónarmanns, sem er Þórður Sævar Jónsson.

Þórður Sævar Jónsson
Sími: 663 1306 eða Akureyrarbæ 460 1000.
Netfang: thordurs@akureyri.is