Til baka

Nonnahús

Aðalstræti 54
Sími: 462 3555 / 462 4162
Netfang: minjasafnid@minjasafnid.is
Heimasíða: minjasafnid.is

Nonnahús er talið hafa verið byggt árið 1849. Akureyrarbær á húsið og er þar safn til minningar um rithöfundinn og prestinn Jón Sveinsson, Nonna (1857-1944). Húsið var friðað samkvæmt þjóðminjalögum árið 1978 og er að flestu leyti gott dæmi um elstu timburhúsagerðina. Í safninu er að finna ýmsa muni sem tengdir eru Nonna, myndir og bækur hans á fjölmörgum tungumálum. 

Opnunartími og aðgangseyrir
Nonnahús er opið daglega kl. 11-17 frá 1. júní til 1. október. 
Vetrartími (2. október - 31. maí): Opið daglega kl. 13-16

Aðgangseyrir (18+): 2.300 kr.
Lífeyrisþegar (67+) og öryrkjar: 1.300 kr. 
Hópar (10 eða fleiri): 15% afsláttur eða 2.000 kr.
Ókeypis fyrir yngri en 18 ára.

Aðgangsmiðinn gildir allt árið og gildir á Minjasafnið og öll þau söfn sem því tilheyra, Nonnahús, Davíðshús, Leikfangahúsið og Gamla bæinn Laufás í Grýtubakkahreppi.  Handhafi kortsins getur nýtt sér það og komið á fyrrgreind söfn oft á ári eingöngu fyrir 2.300 kr.