Útilistaverk

List er ekki einungis að finna innan veggja listasafna og sýningarsala. Hana er líka að finna á förnum vegi og oft er hún mikilvægur hluti af því sem fyrir augu ber dag hvern án þess að við gerum okkur endilega grein fyrir því. Dæmi um þetta eru útilistaverk, lágmyndir, brjóstmyndir, veggmyndir, skreytilist og ýmis konar minnisvarðar.

Á Akureyri er fjöldi alls kyns útilistaverka sem vert er að staldra við og skoða. Vítt og breitt um bæinn má finna verk eftir listafólk á borð við Ásmund Sveinsson, Einar Jónsson, Elísabetu Sigríði Geirmundsdóttur (Betu), Jóhann Ingimarsson (Nóa), Kristinn E. Hrafnsson, Nínu Sæmundsdóttur, Ragnar Kjartansson, Ríkarð Jónsson og Steinunni Þórarinsdóttur. 

Í bæklingi sem Akureyrarstofa gaf út og hér er stuðst við er Akureyri skipt í sex svæði og má sjá hvaða listaverk er að finna innan hvers svæðis. Bæklingurinn er ekki tæmandi en hér til hægri eru einnig upplýsingar um lágmyndir, brjóstmyndir, veggmyndir, skreytilist og ýmsa minnisvarða og skildi. 

Auk þess má finna upplýsingar á vefnum um útilistaverk í Hrísey og Grímsey. Vefurinn er lifandi og verður bætt við hann upplýsingum eftir því sem við á.

Verkunum er raðað í stafrófssöð heiti þeirra og ártölin vísa til afhjúpunar listaverks á Akureyri nema annað sé tekið fram.

Bæklingurinn á pdf-formi.

Verkefnið er unnið með styrk frá Menningarráði EYÞINGS