Til baka

Bræðrafell - Askja

Bræðrafell - Askja

Helgarferð. Gengið á milli Bræðrafells og Öskju

Bræðrafell - Askja  

Brottför kl. 8 á einkabílum (jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Frímann Guðmundsson
Verð: 35.000/23.000. Innifalið: Fararstjórn og gisting.
Staðfestingargjald 4.000 kr.
1.d. (föstudagur) Ekið í Herðubreiðarlindir. Eftir kaffihressingu er gengið um fremur greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar, 17 km.
2.d. Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafell skoðað. Gist í Bræðrafellsskála.
3.d. Gengið frá Bæðrafelli í Drekagil, 17 km. Gist í Dreka.
4.d. Gengið frá Dreka yfir Dyngjufjöll að Öskju. Hópurinn sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka í Dreka þar sem bílarnir bíða. Ekið heim um kvöldið.
Bílar þátttakenda verða ferjaðir frá Herðubreiðarlindum upp í Dreka.
ATH. Takmarkaður fjöldi.

Hvenær
23. - 26. júlí
Klukkan
08:00-19:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar Skipgata 23
Verð
35.000 kr./23.000 kr.
Nánari upplýsingar

www.ffa.is