Þjóðhátíðardagurinn 17. júní 2025
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní skipar háan sess í hugum Akureyringa sem og allra landsmanna
Gleðilega Þjóðhátíð!
Hátíðarhöld á Akureyri 17. júní 2025
Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur að og frá hátíðarsvæðinu.
*Dagskrá birt með fyrirvara um breytingar.
Hæ hó jibbí jei!
Skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar leggur af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12.30 og heldur suður í Lystigarð þar sem formleg hátíðarhöld fara fram. Mætum öll í skrúðgönguna!
Blómabíll Akureyrar
Blómabíllinn leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11.00, keyrir í gegnum íbúðahverfin, niður Listagilið, eftir Strandgötunni og víðar þar sem ómur berst frá palli bílsins með viðeigandi 17. júní lögum. Hlustum eftir lögunum og vinkum blómabílnum okkar.
Akstursleið blómabílsins er að finna HÉR!
Hátíðardagskrá í Lystigarðinum
13.00-14.00
- Fánahylling
- Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur
- Bænagjörð og blessun: Eydís Ösp Eyþórsdóttir, djákni í Glerárkirkju
- Kór Glerárkirkju undir stjórn Valmars Väljaots
- Fjallkonan, Kolfinna Líndal Arnarsdóttir nýstúdent frá VMA
- Ávarp bæjarstjóra: Ásthildur Sturludóttir
Fjölskylduskemmtun í Lystigarðinum
14.00-17.00
- 14.00 Eik Haralds & Guðjón
- 14.20 Dansatriði frá Steps Dancecenter
- 14.30 Tinna & Daníel Andri
- 15.00 Drinni & The Dangerous Thoughts
- 15.30 Dansatriði frá DSA Listdansskóla Akureyrar
- 15.40 Hvolpasveitin
- 16.20 Jónína Björt & Ívar Helga
Afþreying á MA-túni og víðar
14.00-17.00
- Hoppukastalar
- Andlitsmálning kl. 14.00 - 16.00
- Frisbígolf með Frisbígolffélagi Akureyrar í Stefánslundi norðan við MA
- Götukörfubolti með Körfuknattleiksdeild Þórs við íþróttahús MA
- Hópleikir fyrir börn á öllum aldri á túninu vestan við heimavist MA & VMA
- Sölutjald frá Skátunum
- Skátatívolí
- Matarvagnar
Fögnum þjóðhátíð saman! Fjölmennum í skrúðgönguna!
Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur.
Allt hátíðarsvæðið

Stærri mynd má nálgast HÉR
Akstursleið blómabílsins er að finna HÉR!
Helstu bílastæði við hátíðarsvæði.
Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur að og frá hátíðarsvæðinu.
- Bílastæði við Kaupvang 1000m
- Bílastæði við Berjaya Akureyri Hótel 730m
- Bílastæði við Verkmenntaskólann á Akureyri 620m
- Bílastæði neðan við Rósenborg 600m
- Bílastæði við Sundlaug Akureyrar 530m
- Bílastæði við Kjörbúðina 530m
- Bílastæði við íþróttahöllina 400m
- Bílastæði Menntaskólans á Akureyri við Eyrarlandsveg 310m