Til baka

3 á 3 Götukörfuboltamót Þórs í Garðinum hans Gústa

3 á 3 Götukörfuboltamót Þórs í Garðinum hans Gústa

3 á 3 Götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa við Glerárskóla

Laugardaginn 29. ágúst kl. 11:00 verður 3 á 3 Götukörfuboltamót Þórs haldið í Garðinum hans Gústa, glæsilegasta útikörfuboltavelli landsins við Glerárskóla. Keppt verður í fjórum flokkum:

  • 13 ára og yngri (fædd 2013 og seinna)
  • 15 ára og yngri (fædd 2011 og seinna)
  • opnum flokki (fædd 2008 og eldri)
  • eldri manna/kvenna flokki (25 ára og eldri)

Öllum frjálst er að taka þátt í mótinu. Einn skiptimaður er leyfður (þ.e. hámark fjórir saman í liði). Spilað verður upp í 11 stig (1 og 2 stig fyrir körfu) en vinna þarf með tveimur stigum. Dómarar dæma leikina. Spilað verður eftir 3x3 FIBA reglum. Spilað verður í riðlum ef þátttaka krefst þess.

Þátttökugjald er 10.000 krónur á lið og greiðist á staðnum. Sigurvegarar í hverjum flokki fá verðlaun en auk þess verða veitt verðlaun fyrir bestu tilþrif mótsins, flottasta liðið og háttvísi.

Veitingar verða seldar á staðnum og plötusnúður sér um að halda uppi körfuboltastemningu.

Mótið hefst stundvíslega kl. 11:00 og eru liðin beðin að mæta eigi síðar en kl. 10:40.

Skráningarform fyrir mótið er að finna á Facebook síðu Garðsins hans Gústa (https://www.facebook.com/gardurinnhansgusta). Skráning þarf að berast eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 27. ágúst.

Fréttir og myndir í tengslum við mótið munu birtast á Facebook-síðu Garðsins hans Gústa. Deilið sem víðast.

Hafið samband við Bjarka Oddsson (s. 8214818, lubjark@gmail.com) eða Guðmund Oddsson (s. 7715707) ef spurningar vakna.

Hvenær
laugardagur, ágúst 29
Klukkan
11:00-15:00
Hvar
Við Glerárskóla
Verð
10.000 kr.