Til baka

Á Nonnaslóð

Á Nonnaslóð

Létt söguganga um slóðir drengsins Nonna sem síðar varð þekktur rithöfundur um víða veröld. Tilvalið fyrir börn og fullorðna.

Nonnahús er kennt við rithöfundinn Jón Sveinsson, Nonna. Hann var hvorki eigandi hússins né bjó þar lengi. Hvers vegna er húsi kennt við hann? Hvernig stóð á því að Nonni var sendur til náms í Frakklandi tæplega 12 ára? Saga foreldra og systkina Nonna er ekki síður áhugaverð. Þessar sögur verða til umfjöllunar í gönguferð á slóð Nonna fimmtudaginn 18. ágúst.
Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri, leiðir gönguna sem tekur rúma klukkustund. Ganga hefst við Nonnahús kl. 17 og lýkur þar rúmum klukkutíma síðar. Gangan er þátttakendum að kostnaðarlausu. Tilvalið fyrir alla fjölskylduna.

Hvenær
fimmtudagur, ágúst 18
Klukkan
17:00-18:30
Hvar
Aðalstræti 54, Akureyri
Verð
Ókeypis