Til baka

Abbey Road - Dúndurfréttir

Abbey Road - Dúndurfréttir

 

Abbey road, hljómplata Bítlanna fagnaði 50 ára afmæli
síðastliðinn september. Við það tækifæri flutti hljómsveitin Dúndurfréttir
plötuna í heild sinni fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu og heppnaðist
einstaklega vel. Nú ætla strákarnir í Dúndurfréttum að koma með þetta sama
prógramm á Græna Hattinn og flytja plötuna í heild sinni ásamt öðrum sérvöldum
Bítlalögum.

Come together, Something, Here comes the sun, Golden Slumbers og öll
hin frábæru lögin. Andi fortíðar mun svífa yfir þetta kvöld og strákarnir lofa
einstakri skemmtun og eftirminnilegu kvöldi í faðmi tónlistar Bítlanna.

 

Sérstakir aðstoðarmenn og hljóðfæraleikarar þetta kvöld verða þeir Haraldur V.
Sveinbjörnsson og Helgi Reynir Jónsson. 

www.graenihatturinn.is

Hvenær
föstudagur, janúar 31
Klukkan
22:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri