Til baka

Aðventa í Norðangarra - húslestur í hljóðheimi

Aðventa í Norðangarra - húslestur í hljóðheimi

Aðventa eftr Gunnar Gunnarsson, húslestur með hljóðmynd.

Fjalla-Bensi, Eitill og Leó lifna við í Davíðshúsi þegar Norðangarri flytur Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson. Sagan verður lesin í heild sinni við lifandi tónlist og hljóðheim sem verður til á staðnum. Stemning í anda gömlu húslestranna í stofunni í Davíðshúsi.

Norðangarra skipa Erla Dóra Vogler, söng- og leikkona, Þórður Sigurðarson, píanóleikari, og Jón Þórsteinn Reynisson, harmonikkuleikari.

Laugardaginn 28. nóvember kl. 13 í Davíðshúsi. Flutningurinn tekur um 2,5 klukkustund. Takið gjarnan handavinnu með ykkur!

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Styrktaraðilar:
Örvar, styrktarsjóður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins
Menningarsjóður Akureyrarbæjar
Norðurorka

Hvenær
laugardagur, nóvember 28
Klukkan
13:00-15:30
Hvar
Bjarkarstígur 6, Norðurbrekkan, Akureyri, Iceland
Verð
Ókeypis