Það er heilmikið fjör í GLUGGANUM í Hafnarstræti 88 í apríl. Þar er nefnilega þreföld afmælisveisla, barnafmæli, dúkku- og dýraafmæli og barbíafmæli! Það glittir í sætar kökur og snúða á uppdekkuðum borðum og gjafirnar eru ekki af verri endanum, ýmis leikföng og annað góss.
Efniviður gluggasýningarinnar kemur m.a. af nytjamörkuðum og úr safni Tveiten systranna Brynju og Áslaugar sem setja upp sýninguna. Fullorðnir sjá eflaust eitt og annað kunnuglegt sem hlýjar þeim um hjartarætur og þau sem yngri eru sjá vonandi allskonar fjársjóði og upplifa eftirvæntinguna í loftinu. Það eitt er víst að sýningin hentar öllum aldurshópum og er ætluð til að vekja forvitni, gleði og skapa skemmtilegan áfangastað í gönguferðum um bæinn.
Sýningin er aðgengileg og opin allan sólarhringinn.