Til baka

Afmælisboð Nonna í Nonnahúsi

Afmælisboð Nonna í Nonnahúsi

Upplestur, föndur og veitingar - 167 ára afmæli í Nonnahúsi.
Barnabókarithöfundurinn Jón Sveinsson, Nonni, fæddist 16. nóvember 1857. Af þessu tilefni er boðið til afmælis á æskuheimili hans, Nonnahúsi, á afmælisdaginn milli 12 og 14.
Gerður Kristný les úr eigin barna- og ungmennabókum. Sögur Nonna fá að hljóma og lesnar rímur úr Dótarímum Þórarins Eldjárns.
Það verður hægt að myndskreyta bók eða gera eigin bókakápu.
Í boði verða piparkökur, konfekt, djús og jólaöl meðan afmælisbirgðir endast.
Velkomin í notalega stund í Nonnahúsi frá 12-14 laugardaginn 16. nóvember.
Það er auðvitað ókeypis inn enda afmæli!
Hvenær
laugardagur, nóvember 16
Klukkan
12:00-14:00
Hvar
Nonnahús, Aðalstræti, Akureyri
Verð
Ókeypis