Til baka

Akureyrarhlaup Mizuno og atNorth

Akureyrarhlaup Mizuno og atNorth

Götuhlaup; 5 km, 10 km og hálfmaraþon (21,1 km)

Akureyrarhlaup hefur verið árviss viðburður í Íþróttalífi Akureyringa frá 1992. Almenningshlaup sem hentar fólki á öllum aldri jafnt vönum hlaupurum sem skokkurum sem vilja taka þátt í skemmtilegum viðburði. Að þessu sinni er keppni í hálfmaraþoni jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni og við eigum von á mörgum af okkar sterkustu hlaupurum í keppnina.

Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka.

Skráning fer fram á netskraning.is og einnig verður hægt að skrá sig í World Class á keppnisdag milli kl. 16.00 og 18.30. Athugið að öll keppnisgjöld hækka um 1.000 kr. á miðnætti 2. júní.

Hvenær
fimmtudagur, júlí 3
Klukkan
19:00-22:00
Hvar
World Class, Strandgata, Akureyri