Ert þú á aldrinum 6-15 ára? Áttu síma eða myndavél?
Á barnamenningarhátíð í október langar Minjasafninu á Akureyri að búa til sýningu með myndum barna af Akureyri. Myndirnar verða settar upp jafnóðum á sýningunni Akureyri bærinn við Pollinn. Barnið færð a.m.k. eina mynd á sýninguna.
Taktu eina mynd í hverjum flokki eða bara eina mynd úr því þema sem þér líst á:
1. Uppáhaldsstaðurinn minn á Akureyri
2. Hverfið mitt
3. Morgunn á Akureyri
4. Litir
5. Nærmynd
Takmarka þarf fjölda foreldra og forráðamanna á hverjum viðburði við 20 og virða tveggja metra regluna. Fólk er beðið að virða núgildandi sóttvarnarreglur yfirvalda í hvívetna. Sjá nánar á www.covid.is
Viðburður á Facebook HÉR
Viðburðurinn er haldin í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri sem fer fram í október og nýtur stuðnings Akureyrarbæjar og Uppbyggingarsjóðs SSNE.