Til baka

Aldrei fór ég norður

Aldrei fór ég norður

Aldrei fór ég norður - uppistand á Verkstæðinu á Akureyri

Föstudaginn 23. September stíga á stokk 7 bráðfyndnir grínistar sem eru virkir í uppistandssenunni í Reykjavík og ætla þau að kitla hláturtaugarnar. Sýningin er uþb 120 mínútur til lengdar.

Grínistarnir eru:

Arnór Daði
Hauganesingurinn sem vakti mikla lukku með sýningunni sinni „Big, Small Town Kid“ (fáanleg á Sjónvarp Símans og Vodafone).

Ársæll Rafn
Ársæll Rafn er leikari og frábær grínisti sem hefur verið að koma fram um land allt í nokkur ár. Hann frumsýndi solo sýninguna sýninguna sína Awkwardly Confident á RVK Fringe Festival 2021.

Baldvin Ómar
Stundum kallaður Rassi, oftar Baldur. Er menntaður uppistandari en vill ekki segja hvaðan. Það er aldrei neitt honum að kenna.

Bimma Magg
Bimma Magnúsdóttir er bráðfyndinn filterlaus grínisti sem hefur verið að koma fram hér og þar um landið í nokkur ár. Hún skipuleggur einni vinsæl uppistandskvöld í Hveragerði, heimabæ sínum.

David í Dali
Færeyingurinn David í Dali hefur farið á kostum síðustu misseri fyrir sprell sitt, bæði hérna á Íslandi og „heima“ í Færeyjum.“

Friðrik Valur
Friðrik Valur er óútreiknanlegur rugludallur sem hefur verið að koma fram síðan 2017 og hefur verið að reka tvö uppistandskvöld í viku í Reykjavík. Hann vakti nýlega athygli fyrir uppistandsýninguna sína Clean sem hann frumsýndi á RVK Fringe Festival 2022

Lovísa Lára
Lovísa Lára hefur verið að koma fram reglulega í Reykjavík síðast liðið ár þar sem hún hefur vakið mikla athygli. Hún hefur verið að koma fram með grínhópnum Kitl og Six comics, Four countries, Two joke minimum.

Hvenær
föstudagur, september 23
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Strandgata 53, Akureyri
Verð
2.990 kr.