Til baka

Alexander Steig - Steinvölur Eyjafjarðar

Alexander Steig - Steinvölur Eyjafjarðar

Í reglulegum gönguferðum sínum meðfram ánni Isar í München í Þýskalandi leitar listamaðurinn Alexander Steig (f. 1968) að steinvölum. Þar sem hann er menntaður listmálari og myndhöggvari er það frekar áhugi hans á skúlptúr en jarðfræði sem er hvatinn að þessari leit. Hann mun halda áfram að leita að steinvölum í fjörunni á Hjalteyri, en þangað hefur hann nú þegar komið tvisvar sinnum, 2008 og 2012.

Fyrir Listasafnið á Akureyri hefur hann upphugsað verkefnið eyja-fjörður-vala, sem er tileinkað steinvölum heima-fjarðar Akureyrar – Eyjafirði. Sem myndrænum leikmunum breytir hann steinvölunum miðlægt og skoðar með því skammlífi þeirra með vísun í „pússningu“ þeirra, mismunandi stærð og möguleika á skyggingu. Listamaðurinn varpar síðan tæknilega þessu stein-vídeói og sér þá það sem virðist vera kyrrstæð hreyfimynd; steinvölurnar snúast í raun um möndul sinn á 24 tíma fresti. Steig sýnir óskynjanlega hreyfimynd þar sem tvívídd „myndarinnar“ og þrívídd uppruna hennar teygja sig yfir í fjórðu víddina, tímann.

Hvenær
27. janúar - 26. maí
Klukkan
12:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Aðgangseyrir inn á safnið - frítt fyrir 18 ára og yngri