Til baka

Almenn leiðsögn um sýninguna Að vera vera

Almenn leiðsögn um sýninguna Að vera vera

Komdu í Listasafnið!

Almenn leiðsögn um sýningu Brynhildar Kristinsdóttur – Að vera vera.

Brynhildur Kristinsdóttir
Að vera vera
26.08.2023-11.08.2024
Salur 06

Verurnar hafa fylgt mér frá því að ég skoðaði Museo della Statue Stele Lunigianesi í Pontremoli á Ítalíu vorið 1990. Frumstæðar höggmyndirnar höfðu mikil áhrif á mig og hafa fylgt mér æ síðan. Í verkum mínum skoða ég þenslu málverksins ásamt því að breyta lögun þess frá flatneskju yfir í þrívítt form. Ég velti fyrir mér hvað er innan og utan myndformsins og tengslum þess við umhverfið, en undanfarin ár hef ég í auknum mæli valið að sýna verk mín utandyra.“

Brynhildur Kristinsdóttir (f. 1965) vinnur með mismunandi miðla sem taka mið af viðfangsefninu hverju sinni. Hún hefur kennt myndlist og átt í samstarfi við ýmsa listamenn, gert leikmyndir og búninga fyrir gjörninga og dans. Brynhildur nam myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún lauk kennaranámi frá Háskólanum á Akureyri og meistaranámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands 2022. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum.

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 27. ágúst
Tímasetning: kl. 12.00 (kl. 12.30 - ensk leiðsögn)
Staðsetning: Listasafnið á Akureyri, salur 06
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir


Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku 2023.

Hvenær
sunnudagur, ágúst 27
Klukkan
12:00-12:30
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir