Til baka

Almenn leiðsögn um sýninguna Töfrasproti tréristunnar

Almenn leiðsögn um sýninguna Töfrasproti tréristunnar

Sjáumst í Listasafninu.

Almenn leiðsögn um sýningu Drafnar Friðfinnsdóttur – Töfrasproti tréristunnar.

Dröfn Friðfinnsdóttir
Töfrasproti tréristunnar
26.08.2023-10.03.2024
Salur 09

Dröfn Friðfinnsdóttir (1946-2000) nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1962-1963 og við Dupointskólann í Kaupmannahöfn 1964. Haustið 1982 hóf hún nám við Myndlistaskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan frá málaradeild 1986. Hún hélt áfram námi í Finnlandi 1987-1989. Dröfn hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir list sína og 1998 var hún Bæjarlistamaður Akureyrar.

Sýningin Töfrasproti tréristunnar fjallar um afar frjótt tímabil í listsköpun Drafnar, sem hófst í námsferð til Finnlands 1987 og stóð til 1999, þar sem tréristan er hennar aðalviðfangsefni. Dröfn risti myndverk sín í stórar og grófar krossviðarplötur og þrykkti eitt eintak í einu án aðstoðar hefðbundinna grafíkáhalda. Á þennan nána hátt glímdi Dröfn bæði við efnið og andann. Þegar liturinn og tréð létu undan sífelldum strokum listamannsins og gáfu eftir á pappírinn fullbúið verk, er eins og myndin fljóti á milli flatarins og áhorfandans, þar sem æðar og áferð prentplötunnar eru enn til staðar eins og fjarlæg minning.

Sýningarstjóri: Haraldur Ingi Haraldsson.

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 27. ágúst
Tímasetning: kl. 16:00 (kl. 16.30 - ensk leiðsögn)
Staðsetning: Listasafnið á Akureyri, salur 09
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir


Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku 2023.

Hvenær
sunnudagur, ágúst 27
Klukkan
16:00-16:30
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir