Til baka

Alþjóðlegi Geðheilbrigðisdagurinn og Lausa skrúfan á Glerártorgi

Alþjóðlegi Geðheilbrigðisdagurinn og Lausa skrúfan á Glerártorgi

Kynning á verkefninu Lausa Skrúfan, tónlistaratriði frá Ívari Helgasyni and Salsadans með Salsa North

Ert þú með lausa skrúfu? 

Verið velkomin á Alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn á Glerártorgi þann 10. október.
Á milli kl. 12 og 18 verður Grófin Geðrækt með bás þar sem verkefnið Lausa skrúfan verður kynnt fyrir gestum og gangandi. 

Klukkan 16.30 verður Ívar Helgason með tónlistaratriði og frá kl. 17.00-17.30 munu kennarar og nemendur Salsa North bjóða upp á suðræna stemningu.Hópurinn mun sýna kúbverskan hringdans (Rueda de Casino) og bjóða upp á opið dansgólf þar sem allir eru velkomnir að dansa með eða horfa á.

Gjafir verða í boði á meðan birgðir endast og verður einnig hægt að styrkja verkefnið á staðnum.

Sjáumst á Glerártorgi. 

 

 

Hvenær
fimmtudagur, október 10
Klukkan
12:00-18:00
Hvar
Glerártorg, Gleráreyrar, Akureyri
Verð
ókeypis