Til baka

Andrésarleikarnir 50 ára - Afmælissýning

Andrésarleikarnir 50 ára - Afmælissýning

Andrésarleikarnir voru fyrst haldnir árið 1976 og fagna því 50 ára afmæli í ár.

Afmælissýning í höllinni laugardaginn 25. apríl kl. 13.00 til 14.30

Andrésarleikarnir voru fyrst haldnir árið 1976 og fagna því 50 ára afmæli í ár. Af því tilefni verður haldin sérstök afmælissýning í íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 25. apríl kl. 12.00–13.30, þar sem saga leikanna verður rifjuð upp í myndum, viðtölum og heimildum frá liðnum árum.

Á sýningunni verður ljósmyndasýning sem Hörður Geirsson safnvörður Minjasafnsins á Akureyri hefur tekið saman. Myndirnar endurspegla sögu leikanna á síðustu 50 árum, þróun þeirra og vöxt. Einnig verður sýnd heimildamynd með texta eftir Hermann Sigtryggsson og Kristrúnu Lind Birgisdóttur og myndum frá Herði.

Sýnd verða viðtöl við Ívar Sigmundsson, fyrrum formann Skíðafélags Akureyrar og forstöðumann Hlíðarfjalls, og Fjalar Úlfarsson, núverandi formann Andrésarnefndarinnar. Þá verður einnig hægt að skoða blaðaúrklippur og annað efni sem varpar ljósi á sögu og þróun leikanna.

Sýningin er opin öllum, en sérstaklega eru fyrrum keppendur, fjölskyldur og sjálfboðaliðar Andrésarleikanna boðnir velkomnir til að koma saman, rifja upp góðar minningar og fagna þessum merka áfanga. Fjölmargir skíðamenn eiga ljúfar minningar frá leikunum og ekki er óalgengt að sjá fyrrum keppendur mæta brosandi með börnin sín á leikana. Flestir – ef ekki allir – af okkar bestu skíðamönnum hófu sinn keppnisferil einmitt á Andrésarleikunum.
Skíðafélag Akureyrar stendur að leikunum og má finna nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.skidi.is og á Facebook-síðu Andrésarleikanna (facebook.com/andresarleikar).

Hvenær
laugardagur, apríl 25
Klukkan
13:00-14:30
Hvar
Íþróttahöllin