Sunnudaginn 27. september verður afar áhugavert málþing um Eyfirðinginn Ara Brynjólfsson, eðlisfræðing, haldið í Hvosinni, MA. Þar mun meðal annarra sonur Ara, Erik Brynjólfsson, prófessor við Stanford háskóla, halda erindi en Erik er heimsþekktur fyrir rannsóknir sínar á áhrifum gervigreindar og upplýsingatækni á framleiðni, viðskipti og efnahagsþróun.
Dagskrá Aravöku – Minningarmálþings um Ara Brynjólfsson
Sunnudaginn 27. september 2026, Menntaskólanum á Akureyri
13.30 Fundarstjóri: Berglind Ásgeirsdóttir, fyrrverandi sendiherra, býður gesti velkomna.
Setningarávarp: Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
13.40 Ávarp: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar.
13.45 Tónlist: „Lysting er sæt að söng“ eftir Snorra Sigfús Birgisson. Flytjendur eru Mahaut Ingiríður Matharel, sópran, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló.
13.50 Dr. Sigurður Emil Pálsson, eðlisfræðingur og sérfræðingur í geislavörnum og umhverfisvernd: „Vísindastörf Ara Brynjólfssonar – gildi þeirra fyrr og nú.“
14.10 Ávarp: Valdís Björk Þorsteinsdóttir brautarstjóri, Menntaskólanum á Akureyri.
14.15 Tónlist: „MIAMOR“ eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur. Flytjandi: Eydís Úlfarsdóttir, víóla.
14.20 Ávarp: Dr. Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri.
14.25 Hlé
14.50 Prófessor Erik Brynjolfsson: „Frá Akureyri til Apollo og gervigreindar – öld framfara.“
15.20 Tónlist: „Ástin heldur að ég sofi“, eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur og „Amour pense que je dorme“ eftir Pierre Sandrin. Flytjendur: Eydís Úlfarsdóttir, víóla, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló.
15.30 John Brynjolfsson: “Don’t Stop… Thinking About Tomorrow.”
15.40 Alan Brynjolfsson: „Bandaríski víkingurinn.“
15.50 Dr. Ragnheiður Guðmundsdóttir, fyrrverandi eðlisfræði- og stærðfræðikennari: „Fyrirmynd sem vísaði veginn – áhrifavaldurinn Ari Brynjólfsson.“
16.00 Lokaorð: Dr. Þórhallur Eyþórsson, prófessor við Háskóla Íslands.
Sjá nánar hér