Velkomin á ljóðasýninguna mína.
Hér hef ég uppá ýmislegt að bjóða. Þó aðallega ástina því hún leynist svo víða þó hún reyni stöðugt að villa á sér heimildir.
Hér birtist þér ljóðaleið gegnum líf mitt síðustu 30 ár. Ljóðin eru 24 sem er sá tími sem ástin hefur bundið mig í báða skó við manninn sem ást mína á.
Hér leynist líka óður til barnanna minna, sem birta mér ástina í sinni tærustu mynd með því einu að vera til.
Og ýmislegt fleira sem ég læt þig um að greina.
Ég bið þig um að halda þér fast og leyfa mér að leiða þig í gegnum þetta ljóðager, sem vonandi kveikir aðeins í hausnum á þér. Því sammannleg ástin er, líkt og margt annað í veröldinni sem við erum svo fljót að gleyma.
Örvarnar vísa þér í tímaröð, en þú ræður samt hvar þú byrjar.