Ásta Soffía - Sumartónar harmoniku
Yndislegir harmonikutónar - frá Bach til frumflutnings
Tónverk eftir Nadiu Boulanger og J.S. Bach munu hljóma um Akureyrarkirkju á tónleikum Ástu Soffíu harmóníkuleikara þann 13. júlí. Einnig mun hún leika eigin útsetningar á íslenskum sálmum, tangóum og þjóðlögum og frumflytja nýtt tónverk eftir Hauk Tómasson.
Aðgangur er ókeypis og tekið við frjálsum framlögum.
Öll hjartanlega velkomin!
Sóknarnefnd Akureyrarkirkju, Menningarsjóður Akureyrarbæjar, Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis og Menningarsjóður KEA styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.