Tónlistarmaðurinn Auður gaf út svítuna “ljós” 3. apríl síðastliðinn í kjölfar þess er hann vann Íslensku Tónlistarverðlaunin fyrir lag ársins 2019 “Enginn eins og þú” en einnig vann hann verðlaunin fyrir Söngvari ársins og Tónlistarflytjandi ársins.
“Verkið er bæði í senn eitt lag og skipt í fjóra sjálfstæða kafla. Formið svipar því til svítu í klassískri tónlist.” – Auður
Auður dregur formföst áhrif frá framsæknum rokkhljómsveitum eins og Pink Floyd og The Mars Volta og blandar því saman við rytmíska hljóðheima og persónulegar lagasmíðar.
Auður flutti síðan verkið í heild sinni í lokaþætti Gísla Marteins í maí sem að
hefur vakið mikla athygli.
Síðasta sumar gaf hann út lagið Enginn eins og þú sem endaði á toppsætum vinsældarlista útvarpsstöðva og streymisveita og slegið hvert metið á fætur öðru og er enn þann dag í dag á vinsældarlistum. Auður hefur spilað ásamt hljómsveit út um allt land og er alltaf jafn spenntur fyrir því að koma fram á Græna Hattinum en það er alltaf mikil upplifun að sjá Auður á sviði.
Hljómsveitina skipa:
Daníel Friðrik Böðvarsson – Rafgítar og rafbassi
Ellert Björgvin Schram – hljómborð og rafbassi
Magnús Jóhann Ragnarsson – hljómborð og hljómsveitarstjórn
Þorvaldur Þór Þorvaldsson – Trommur