Til baka

Augnablik - fallega líf myndlistarsýning

Augnablik - fallega líf myndlistarsýning

Myndlistarsýningin, Augnablik - fallega lif

Um sýninguna
Í listsköpun minni dreg ég fram þá fegurð sem oft fer framhjá okkur í hversdagslegum augnablikum, sem við upplifum og festi þau á mynd. Stíll minn er abstrakt-raunsæi. Verk sýningarinnar sýna augnablik í okkar fallega lífi og mótívið eru hendur. Ég tek ljósmyndir af höndum sem ég vinn svo áfram með í ferlinu. Ég nýti abstrakt-bakgrunn til að undirstrika viðfangsefnið, sem er raunsætt. Þannig nær boðskapurinn betur í gegn og fær aukið vægi í einfaldri en raunsærri mynd sem hvílir ofan á abstrakt-grunninum.

Í verkum mínum nota ég kol, pappírssniðmát sem ég geri sjálf, klippimyndir (Morgunblaðið), ýmis bindiefni, spreymálningu, akrýlmálningu og olíumálningu í lögum.

Um myndlistarkonuna
Myndlistarkonan Kristín Ragnars er fædd og uppalin á Sauðárkróki. Kristín byrjaði á unga aldri að teikna og hefur tekið mörg námskeið í tengslum við myndlist. Hún fór í Myndlistar og handíðaskóla Íslands og lauk fornámi þaðan 1998. Þá tók hún langt hlé meðan hún var að ala upp börnin sín, en hefur tekið námskeið við og við í gegnum tíðina.

Árið 2024 fór hún í myndlistarnám í Myndlistarskóla Akureyrar og tók aðeins eitt ár þar sem skólanum var lokað haustið 2025. Það leiddi til þess að Kristín ákvað að fara í fjarnám í myndlist frá Milan Art Institute árið 2025-2026 í “Mastery Program” sem er um 2ja ára nám í myndlist.

Í verkum sínum leitast Kristín við að tjá það sem er fallegt í jafnvel smáum hversdagslegum andartökum og lyftir því upp. Hvort sem það er náttúra, fólk eða litlir hlutir sem við í hversdagsleikanum gleymum og við getum öll verið þakklát fyrir að upplifa.

www.kristinragnars.is
www.facebook.com/pg/kristinragnar
kristinragnars75@gmail.com
s. 8642225

Einkasýningar:
2016 – Fyrstu sporin mín, haldin í Miklabæjarkirkju og síðar sama ár í Kakalaskála í Skagafirði.
2018- Heimili norðursins Atvinnulífssýning, haldin í íþróttahúsi á Sauðárkróki
2019 – Sýn, haldin í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga, Sauðárkróki.
2026 – Örsýning, haldin í RH endurskoðun, Sæmundargötu 1, Sauðárkróki
Samsýningar:
2015 – Litbrigði samfélagsins, samsýning myndlistarfólks í Sólon Myndlistarfélagi, haldin í Gúttó í Sæluviku Skagfirðinga, Sauðárkróki.
2016 – Litbrigði samfélagsins, samsýning myndlistarfólks í Sólon Myndlistarfélagi, haldin í Gúttó í Sæluviku Skagfirðinga , Sauðárkróki.
2017– Litbrigði samfélagsins, samsýning myndlistarfólks í Sólon Myndlistarfélagi, haldin í Gúttó í Sæluviku Skagfirðinga, Sauðárkróki.
2017- Sólon Myndlistarsýning, samsýning myndlistarfólks í Sólon Myndlistarfélagi, haldin í Gúttó, Sauðárkróki
2018 – Litbrigði samfélagsins, samsýning myndlistarfólks í Sólon Myndlistarfélagi, haldin í Gúttó í Sæluviku Skagfirðinga, Sauðárkróki.
2021- Þemasýning: Þórdís, samsýning haldin í í Listakoti Dóru í Vatnsdalshólunum
2022- Þemasýning: Borgarvirki, samsýning haldin í Listakoti Dóru í Vatnsdalshólunum.
2023- Heima/Home, samsýning haldin í Hillebrandtshúsinu á Blönduósi.
2024- Vorsýning Myndlistarskólans á Akureyri, samsýning nemenda, haldin í Deiglunni, Akureyri.

Styrkir:
2019 – Menningarsjóður Kaupfélags Skagfirðinga
2019 – Uppbyggingarsjóður SSNV

Hvenær
20. - 22. nóvember
Klukkan
17:00-18:00
Hvar
Deiglan