Til baka

Axel Flóvent

Axel Flóvent

Axek Flóvent ásamt hljómsveit loksins aftur á Græna hattinum.

 

 

Tónlistamaðurinn Axel Flóvent er fæddur og uppalinn á Húsavík. Hann hefur búið til tónlist frá unga aldri og komið víða við á tónlistarferlinum.

Fyrsta EP skífa Axels ´Forest Fires´kom út á Islandi árið 2015 þar sem tónlistin var samin undir áhrifum allt frá Bon Iver til Bombay Bucykle Club. Stuttskífan fékk mikla athygli frá umheiminum og titillaginu, Forest fires, hefur verið streymt á Spotify yfir 75 milljónum sinnum.

Axel hefur hitað upp fyrir margar hljómsveitir í gegn um tíðina þar á meðal The Paper Kites, Radical Face, Mumford & Sons, Junius Meyvant og Ásgeir Trausta.

 

Þann 8. febrúar ætlar Axel að spila á sínum fyrstu tónleikum á Græna Hattinum ásamt hljómsveit og verður það vonandi góð blanda af ljúfum tónum og góðum fíling.

 

 

Hvenær
fimmtudagur, febrúar 8
Klukkan
21:00-23:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3500