Hvað ef fágaðir evrópskir barokktónlistarmenn hefðu sest niður á íslenskum sveitabæjum og spilað með heimafólki. Hvernig hefði tónlistin hljómað? Tríóið Gadus Morhua, sem er skipað Björk Níelsdóttur, Eyjólfi Eyjólfssyni og Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur, leitast við að brúa bilið milli baðstofumenningar og evrópskrar hirðmenningar fyrri alda í Minjasafnskirkjunni, laugardaginn 18. apríl kl. 15.
Efnisskráin endurspeglar þessa framsæknu nálgun og samanstendur af blöndu af gömlum og nýjum íslenskum þjóðlögum, frumsömdu efni, einsöngslögum í eigin útsetningum hópsins og barokktónlist frá meginlandi Evrópu.
Nafn hópsins, Gadus Morhua, er latneska heitið yfir atlantshafsþorskinn og vísar til þess sem er í senn þjóðlegt og alþjóðlegt. Hópurinn hefur komið víða fram, jafnt innanlands sem utan, og gaf út sína fyrstu plötu, Peysur og parruk, árið 2020. Undanfarin misseri hefur hópurinn fengist við íslensku fjárlögin, söngvasafn Sigfúsar Einarssonar og Halldórs Jónassonar frá árunum 1915-1916, sem og hættuleg kynni langspils og fransks barokks. Gadus Morhua hefur flutt fjárlagaútsetningarnar víða og var efnisskráin hluti af þjóðhátíðardagskrá Rásar 1 árið 2023. En í lok apríl leggur tríóið í tónleikaferð til Frakklands.
Hvar: Minjasafnskirkjan
Hvenær: Laugardaginn 18. apríl kl. 15
Aðgangur er ókeypis og tekið á móti frjálsum framlögum