Til baka

Bændamarkaður

Bændamarkaður

Matarstígs Helga magra

Matarstígur Helga magra mun fara af stað á nýjan leik með bændamarkaðina sem vöktu mikla lukku í sumar, áður en þeim þurfti að fresta vegna sóttvarna. Nú hafa verið settir þrír markaðir á dagskrá, 26. september og 3. október í Laugarborg í Hrafnagilshverfi kl. 12-16 og á Brunir horse á Brúnum 10. október kl. 12-16.
Þá ákvað stjórn matarstígsins að setja upp skrifstofu í Félagsborg þrjá daga í viku, miðvikudaga til föstudaga, til að auðvelda aðgengi að verkefnastjóra, en hann verður til viðtals kl. 9 og 12 þessa daga. Framundan eru styrkumsóknir í ýmsa sjóði og mun verkefnastjóri verða félögum matarstígsins til aðstoðar við styrkumsóknir án endurgjalds.

Hvenær
laugardagur, september 26
Klukkan
12:00-16:00
Hvar
Laugarborg, Laugarborg, Hrafnagilshverfi
Nánari upplýsingar