Til baka

Bakarís-fyrirlestur: Heilsa og færni einstaklinga sem hafa fengið heilaslag.

Bakarís-fyrirlestur: Heilsa og færni einstaklinga sem hafa fengið heilaslag.

Kynning á rannsókn á heilsu og færni einstaklinga sem hafa fengið heilaslag.

dr. Steinunn A. Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari og lektor við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, kynnir niðurstöður doktorsrannsóknar sinnar sem hún varði við HÍ árið 2021. 

Doktorsrannsóknin fjallar um einstaklinga sem hafa fengið heilaslag en á hverju ári fá um 500 einstaklingar heilaslag á Íslandi. Færni og fötlun einstaklinga í kjölfar heilaslags er mjög mismunandi en þessi rannsókn er sú fyrsta sem skoðar þennan hóp á Íslandi. Annars vegar var könnun lögð fyrir einstaklinga sem búa í heimahúsum 1-2 árum eftir að hafa fengið heilaslag þar sem spurt var um heilsu, færni og aðstæður þeirra og hins vegar var unnið að því að þróa tæknibúnað til að hvetja þennan hóp til aukinnar hreyfingar, en líkamleg virkni og sértækar æfingar eru mikilvægar fyrir einstaklinga eftir heilaslag til að viðhalda og auka líkamlega færni.

Bakarís-fyrirlestrarnir eru samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar og Brauðgerðarhúss Akureyrar. Markmið þeirra er að kynna verkefni sem fólk hefur unnið að hjá AkAk, bjóða upp á viðburði í Sunnuhlíð og gefa bæjarbúum tækifæri til að fræðast og spjalla um fjölbreytt viðfangsefni.

Öll hjartanlega velkomin!

Hvenær
fimmtudagur, október 12
Klukkan
16:00-17:00
Hvar
Brauðgerðarhús Akureyrar, Sunnuhlíð, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir