Til baka

Bakarís-fyrirlestur: Það þarf þorp: Seinfærir foreldrar og glíman við kerfið

Bakarís-fyrirlestur: Það þarf þorp: Seinfærir foreldrar og glíman við kerfið

Dr. Sara Stefánsdóttir kynnir doktorsritgerð sína í fötlunarfræðum

Dr. Sara Stefánsdóttir er iðjuþjálfi og lektor við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri. Í rannsókn hennar er rýnt í hvernig seinfærum foreldrum á Íslandi er veittur stuðningur í ljósi þróunar á réttindum fatlaðs fólks. Gögnum var m.a. safnað með viðtölum við foreldra, fjölskyldu þeirra, réttindagæslumenn fatlaðs fólks, og starfsmenn barnaverndar og félagsþjónustu. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig sú þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum áratugum á vettvangi mannréttinda er ekki fullnægjandi til þess að ryðja úr vegi samfélagslegum og kerfislægum hindrunum þegar kemur að seinfærum foreldrum.

Bakarís-fyrirlestrar eru samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar og Brauðgerðarhúss Akureyrar. Markmið þeirra er að kynna verkefni sem fólk hefur unnið að hjá AkAk, bjóða upp á viðburði í Sunnuhlíð og gefa bæjarbúum tækifæri til að fræðast og spjalla um fjölbreytt viðfangsefni.

Öll hjartanlega velkomin!

Hvenær
þriðjudagur, nóvember 11
Klukkan
16:00-17:00
Hvar
Sunnuhlíð
Verð
Enginn aðgangseyrir