Til baka

Ágúst Brynjarsson og Ballhljómsveit Akureyrarvöku

Ágúst Brynjarsson og Ballhljómsveit Akureyrarvöku

Ágúst Brynjarsson og hljómsveit taka yfir Göngugötuna!

Ágúst Brynjarsson og hljómsveit hlaða í heljarinnar ball með tilheyrandi fjöri! Miðbærinn og Göngugatan iða af lífi á Akureyrarvöku. Ekki láta þig vanta á alvöru dansiball með framúrskarandi bandi. 

Hljómsveitina skipa: 

Ágúst Brynjarsson - gítar og söngur

Bjarni Karlsson - bassi

Eyþór Alexander Hallsson - hljómborð

Daníel Andri Eggertsson - gítar

Gunnar Illugi Sigurðsson - trommur

Ágúst Brynjarsson hefur verið að gera gott mót að undanförnu. Hann gaf út plötuna Hjartað á milljón fyrr á árinu og sá nýverið um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Hér kemur Ágúst fram á heimavelli ásamt fríðum flokki meðreiðarsveina sem munu skapa einstaka stemningu.

Hvenær
laugardagur, ágúst 29
Klukkan
20:00-21:30
Hvar
Göngugatan / Town Center