Til baka

Barna- og fjölskylduferð Hraunsvatn

Barna- og fjölskylduferð Hraunsvatn

Barna- og fjölskylduferð á vegum Ferðafélags Akureyrar - ganga og veiði.

Barna- og fjölskylduferð. Hraunsvatn - veiði

Brottför kl. 13 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Herdís Zophoníasdóttir
Þátttaka ókeypis.
Ekið verður að bænum Hálsi í Öxnadal, þaðan er gengin stikuð leið að Hraunsvatni. Gangan að vatninu tekur rúman klukkutíma. Börn eru hvött til að hafa með sér veiðistangir og beitu (maðk, rækju, gular baunir) til að renna fyrir fisk. Mögulegt er að ganga kringum vatnið fyrir þá sem vilja.

Vegalengdin er 6 km. Gönguhækkun 270 m. Ferðin tekur u.þ.b. 4-5 klst.

Engin skráning.

Hvenær
sunnudagur, ágúst 8
Klukkan
13:00-18:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
Þátttaka ókeypis