Til baka

Barna- og fjölskylduferð. Ævintýraferð í Lamba á Glerárdal

Barna- og fjölskylduferð. Ævintýraferð í Lamba á Glerárdal

Gengið frá Súlubílastæði fram Glerárdal í skálann Lamba og gist eina nótt.

8.-9. ágúst

Brottför kl. 12 frá bílastæði við uppgöngu á Súlur

Fararstjórn: Ragnheiður og Sunna Ragnarsdætur

Lagt er af stað frá bílastæðinu við uppgönguna á Súlur og gengið fram Glerárdal í skálann Lamba þar sem gist verður eina nótt. Ferðin býður upp á fjölbreytta upplifun úti í náttúrunni, m.a. þarf að stikla yfir læki á leiðinni. Lambi er vel útbúinn fjallaskáli með olíukyndingu og gashellu en sækja verður drykkjarvatn í lækinn. Þegar komið er fram í ágúst er farið að dimma á kvöldin og gaman að upplifa myrkrið í í fjallakyrðinni.

Í skálanum er pláss fyrir 16 manns og því þarf að takmarka fjölda í ferðina. Hér er hægt að fá nánari upplýsingar um skálann.

Heildarvegalengd 22 km (11 km hvorn dag). Gönguhækkun 440 m.

Verð og greiðslufyrirkomulag: Frítt fyrir börn en fullorðnir greiða 6.000 /8.000 kr. Staðfestingargjald er 1.500 kr. fyrir fullorðna sem greiðist tveimur vikum eftir að krafa er stofnuð í netbanka. Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu þremur dögum fyrir brottför.

Hvenær
8. - 9. ágúst
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
Frítt fyrir börn en fullorðnir greiða 6.000 /8.000 kr. Staðfestingargjald er 1.500 kr. fyrir fullorðna.