23. ágúst, sunnudagur
Brottför kl. 10 einkabílum frá FFA Strandgötu 23
Fararstjórn: Hulda Jónsdóttir og Fjóla Kristín Helgadóttir
Ekið að Hrauni í Öxnadal. Þaðan er gengið upp í Draugadal og upp á Einbúa sem er í 684 m hæð. Flott útsýni er þaðan yfir Hraunsvatn og fjöllin í kring.Gera má ráð fyrir að ferðin taki 5- 6 klst. Vegalengd um 6 km. Gönguhækkun 450 m.
Þátttaka ókeypis