Til baka

Barna- og fjölskylduferð. Fuglaskoðunarferð

Barna- og fjölskylduferð. Fuglaskoðunarferð

Skemmtileg fuglaskoðunarferð þar sem við lærum að þekkja fugla

19. maí, þriðjudagur

Brottför kl. 17 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23

Fararstjórn: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen

Ertu forvitin(n) um fuglana í náttúrunni? Komdu með í skemmtilega fuglaskoðunarferð þar sem við lærum að þekkja fugla með tveimur frábærum fuglaskoðunarmönnum. Gott er að taka með sér sjónauka og skriffæri — það getur verið gaman að skrá niður þær fuglategundir sem maður sér. Gert er ráð fyrir að ferðin taki 2 klst.

Hvenær
þriðjudagur, maí 19
Klukkan
17:00-19:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
Þátttaka ókeypis