Til baka

Barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna

Barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna

Börn og starfsfólk í Klöppum sýna verkefni tengt Barnasáttmála sameinuðuþjóðanna í Sundlaug Akureyrar.

Verkefnið er lýsandi fyrir fjölbreytileika og samvinnu allra barna í skólanum auk þess sem rödd þeirra og þekking á hugtakinu réttindi kemur fram í tengslum við barnasáttmálann. Verkið samanstendur af myndsköpun, orðræðu barnanna og myndbandi sem hefur að geyma myndir frá verkefnavinnunni, fræðslu og söng. Allir sem heimsækja sundlaug Akureyrar geta notið sköpunar barnanna í Klöppum og geta horft á myndbandið með því að nýta sér QR kóða sem verður staðsettur á vegg hjá verkefninu. Allir sem vilja geta því skoðað myndbandið í sínum snjalltækjum.

Barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna þjónar þeim tilgangi að veita börnum sérstaka vernd, aðstoðar þau ef þau þurfa á því að halda en á sama tíma passar að rödd þeirra heyrist. Við í leikskólanum Klöppum höfum barnasáttmálann að leiðarljósi í starfi okkar og stefnum á að vera réttindaskóli Unicef og er verkefnið okkar í anda þeirrar vinnu. Markmið okkar er að börn viti og skilji hver réttindi þeirra eru og sýnum við afrakstur verkefnisins í formi sköpunar og myndbandsupptöku. Í Klöppum eru 120 börn á aldrinum 1-6 ára og tóku þau nær öll þátt í verkefninu á einhvern hátt. Við tókum myndir af börnunum við verkefnavinnuna og uppsetningu verkefnisins og settum saman í myndband. Í myndbandinu hljómar lag sem börnin sungu, tengt fjölbreytileika auk þess sem það samanstendur af myndum frá verkefnavinnunni og fræðslu um barnasáttmálann og réttindi barna.

Opnunartími sundlaugar Akureyrar:
Mán-fös 6.45-21.00
Lau-sun 9.00-19.00


Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Hvenær
4. - 30. apríl
Hvar
Sundlaug Akureyrar, Skólastígur, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir