Í tilefni sjómannadagsins verður boðið upp á opna listsmiðju í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 6. júní kl. 12-15.
Smiðjan er haldin í tengslum við innsetningu svissneska listamannsins Zimoun sem skapar staðbundnar hljóðinnsetningar og skúlptúra sem að megninu til eru gerðar úr endurunnu efni úr daglegu lífi og iðnaði. Sýningin er partur af Listahátíð í Reykjavík.
Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að skoða innsetningu Zimoun og skapa eigið verk innblásið af sýningunni. Ókeypis inn og öll velkomin!