Til baka

Bergþór Morthens - Hvað viltu segja mér?

Bergþór Morthens - Hvað viltu segja mér?

Hvað viltu segja mér

„Ég hef lengi velt fyrir mér birtingarmyndum valds í samfélaginu og ákveðnu vonleysi gagnvart samtímanum. Verkin mín eru tilraun til að leysa upp þessar birtingarmyndir á gagnrýninn hátt. Slíkt er gert með uppbyggingu og niðurrifi, umsnúningi eða vendingu í ferli málverksins. Myndflöturinn verður nokkurs konar átakasvæði þar sem heildin er rofin. Ferli málverksins tekur yfir og efnið tekur stjórn. Formið víkur fyrir formleysi og verður að nýrri heild með annars konar frásögn. Frásögn sem fjallar ekki síður um, eða vísar til, samhengis utan myndflatarins.“

Bergþór Morthens (f. 1979) lauk námi við Myndlistaskólann á Akureyri 2004 og MA námi í myndlist við Valand háskólann í Gautaborg 2015. Hann hefur haldið einkasýningar á Íslandi, í Rúmeníu og Svíþjóð og tekið þátt í samsýningum á Íslandi, Grikklandi, í Svíþjóð og Danmörku.

Hvenær
17. - 19. janúar
Hvar
Kaktus, Strandgata 11b, Akureyri
Nánari upplýsingar

Opnun 17.01. kl. 20.00

Opið 18.01-19.01 kl. 14.00-17.00