Til baka

Bergur Ebbi - Kynslóðir, uppistand

Bergur Ebbi - Kynslóðir, uppistand

Bergur Ebbi með nýja uppistandssýningu

„Kynslóðir“ er ný uppistandssýning þar sem Bergur Ebbi skemmtir fólki í heila kvöldstund með gamanefni sínu um vesenið sem fylgir því að búa á Íslandi og lifa á tímum stórkostlegra tækni- og þjóðfélagsbreytinga. Sýningin var fyrst sýnd í Tjarnarbíói í vor og voru viðtökur framar öllum vonum og uppselt kvöld eftir kvöld þar til farið var í sumardvala.

Nú stígur Bergur Ebbi á stokk að nýju og fer sýningin, líkt og áður, fram í Tjarnarbíó auk valdra dagsetninga víðsvegar um landið.

„Sturlað fyndinn en líka alvöru hugsuður á fáránlega áreynslulausan hátt. Drepfyndnar pælingar, bráðþarfar í nútímamenningunni." - Auður Jónsdóttir, rithöfundur. FB

Bergur Ebbi er einn reyndasti uppistandari landsins með yfir þrettán ára reynslu af uppistandi, fyrirlestrahaldi og alvarlegum jafnt sem gamansömum greiningum á samfélaginu í bókum, pistlum, sjónvarps- og útvarpsefni.

Hvenær
fimmtudagur, september 1
Klukkan
21:00-23:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4900