Eða áttu uppáhaldsbók sem þú getur ekki hætt að tala um? Komdu á meðmælafundinn okkar!
Komdu með meðmæli og uppgötvaðu nýja titla hjá öðrum bókaunnendum. Við deilum ekki aðeins meðmælum um bækur, heldur einnig um sjónvarpsþætti og kvikmyndir.
Hvort sem þú ert mikill lestrarhestur, kvikmyndaáhugamanneskja eða einfaldlega að leita að tækifæri til að kynnast nýju fólki, þá eru öll velkomin! Komdu og deildu þínum uppáhaldsverkum, uppgötvaðu eitthvað nýtt og njóttu notalegs kvölds í góðum félagsskap.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Komdu með meðmæli – farðu heim með heilan lista af nýju afþreyingarefni!
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.